8 skref til að tryggja að vatnið þitt sé hreint og endist í allt að 12 mánuði

Vörur sem þú þarft:
5-way Test Strips (mælistrimlar) FreshWater Salt test strips. ( salt mælistrimlar) Bayrol SpaTime Alca-Plus Bayrol SpaTime pH+ Bayrol SpaTime pH- Bayrol SpaTime Chlorine Granules (klórduft)
Þetta ferli getur tekið nokkra daga, en tryggir að vatnið haldist ferskt, öruggt og endist í allt að 12 mánuði með lítilli þörf fyrir viðhald.
ATH; fylgið leiðbeiningum í handbók hvers tegundar af Caldera pottum.
Skref 1: Fylltu heitapottinn
Gakktu úr skugga um að saltkerfis-hylkið sé komið á sinn stað.
Með slökkt á heitapottinum, fylltu hann með fersku vatni úr garðslöngu ofan í síuhólfið.
(það er hægt að nota forsíu til að tryggja að vatnið sé laust við málma, fosföt og kalk.)
Fylltu upp í um það bil 3 cm yfir hæsta nudd/dælu stút.
Skref 2: Kveiktu á heitapottinum
Stilltu hitastigið að lágmarki á 35°C.
Kveiktu á nuddinu til að tryggja að allir nuddstútar virki eðlilega. (og slökkva aftur)
Gakktu úr skugga um að saltframleiðslan sé stillt á núll.
FreshWater Salt kerfið er nú SLÖKKT og framleiðir EKKI klór úr salti. (Output level Zero (0)
MIKILVÆGT: Saltkerfið má ekki vera virkjað fyrr en öllum hinum skrefunum hefur verið lokið.
Skref 3: Bættu við salti (muna að hitastig þarf að vera að lágmarki 35°C)
Skoðaðu handbókina til að finna rétt magn miðað við stærð heitapottsins.
Markmiðið er að gildi salts verði 1750 ppm. (particles per million)
- Með nuddkerfið í gangi helltu helmingi af mæltu magni út í pottin.
- Leyfum saltinu að leysast upp í 5 mínútur og mælið svo með saltprófunarstrimli.
- ef gildisalts hefur náð 1750ppm bættu við 1 bolla í senn í síuhólfið.
- Leyfum saltinu að leysast upp í 5 mínútur og mælið svo með saltprófunarstrimli.
- Endurtaktu þar til 1750 ppm er náð.
- Ekki fara yfir 2000 ppm.
Skref 4: Stilltu jafnvægi vatnsins
Notaðu FreshWater 5-í-1 prófunarstrimla til að mæla Alkalinity, og pH.
Heildar-alkalinity (TA):
Mælir getu vatnsins til að hlutleysa, jafna, sýrur og halda pH gildi stöðugu. Þetta er mikilvægt þar sem rétt heildar-alkalinity dregur úr því magni klórs sem þarf.
Af hverju skiptir það máli?
- Lágt alkalinity → pH sveiflast mikið.
- Hátt alkalinity → vatn verður skýjað eða veldur útfellingum/kalkútfellingum.
Markgildi: 80–120 ppm fyrir stöðuleika vatnsins
Við mlum með Alca-Plus frá Bayrol til að hækka heildar- alkalinity.
pH-gildi:
- Mælir hversu súrt eða basískt vatnið er.
- Markgildi: 7,2–7,8.
- Til að hækka pH → pH+.
- Til að lækka pH → pH-.
- Við mælum með: Bayrol SpaTime pH+ og Bayrol SpaTime pH-.
Skref 5: Klórdufti bætt út í pottinn.
Tilgangur: Sótthreinsa ferska vatnið áður en saltkerfið fer í gang.
Markgildi: 5 ppm klór.
- Bættu klór í síuhólfið með nuddkerfi í gangi og nuddstútana í miðjustillta.
- Fylgdu leiðbeiningum í handbók um magn.
- Notaðu FreshWater 5-í-1 prófunarstrimla til að mæla klór (Free chlorine FCL)
Dæmi:
1.250 lítra pottur → 6,25 g Bayrol SpaTime klórkorn hækkar klór úr 0 í 5 ppm.
- Láttu stútana ganga í 5 mínútur, mældu.
- Ef minna en 5 ppm → endurtaktu ferlið þar til markgildinu hefur verið náð.
Skref 6: Nú skal kveikja á FreshWater Salt kerfiinu og stilla saltkerfið á 10 (output level 10)
Potturinn er tilbúinn til notkunar
Næstu dagar eru líka mikilvægir, að halda áfram að mæla og stilla betur. Þetta er nauðsynlegt til að potturinn nái réttum gildum og haldist síðan þannig áfram.
Eins og ofan hefur komið fram skal saltvatnskerfið vera stillt á 10 (output level 10)
FreshWater salt kerfið mun nú byrja að framleiða klór sjálfkrafa.
Eftir 1 sólarhring
Skref 7: Að tryggja jafnvægi klórs.
- Mældu klórgildi með strimlum
- Ef lægra en 3 ppm veldu „Boost“.
Þetta ferli getur tekið nokkra daga, fer eftir gæðum vatns og notkun heitapottsins.
Mældu reglulega og stilltu framleiðslu salts til að viðhalda hreinu vatni.
Næstu dagana
Skref 8: Að tryggja jafnvægi klórs.
- Mældu klórgildi með strimlum
- Ef lægra en 3 ppm veldu „Boost“.
Þetta ferli getur tekið nokkra daga, fer eftir gæðum vatns og notkun heitapottsins.
- Byrjaðu á því að lækka úttaksgildi frá 10 niður í stig sem notandi ákveður til að halda klórmælingum í réttum gildi.
Ef IQ‑kerfið er innifalið, vinsamlegast bíðið að minnsta kosti 21 dag áður en það er virkjað.
Snjallvakningarkerfið er greiningarkerfi fyrir vatnsgæði.
Það mælir, sýnir og gefur tillögur um vatnsgæði fyrir: klór, salt og pH-gildi.
Auk þess gefur það upplýsingar um endingu saltkassettunnar og skynjarans fyrir pH-, klór- og saltmælingar.**

Freshwater IQ
Mælir klór, pH og saltgildi, ásamt endingu skynjara og kassett
Sjá myndbandið hér að neðan til að byrja með FreshWater Salt kerfið.
Vinsamlegast athugið að sum atriði eiga ekki við á Íslandi vegna vatnssamsetning