Sauna
VÖRUNÚMER: 220 3868 VÖRUFLOKKUR:

Kirami saunaklefi S Misty

2.690.000kr.

Sérpöntun

Kirami útisauna S Misty kemur fullsamsett.

Ummál: L: 230 x B: 149,2 x H: 255 – 840kg.

Gólfflöturinn er 3,4fm

Fjöldi: 2-4 manna.

Harvia Glow Corner 6,8 kW rafmagns ofn fylgir með.
Saunaklefinn er hannaður með sama nútímalega stíl og aðrar Misty‑einingar með fullfrágengnu þaki, tilvalið fyrir kaldara loftslag. Hreint og einfalt útlit hentar einstaklega vel í minni garða.

Ytra byrði er úr Greni, hitameðhöndlað mjúkt timbur með djúpum svörtum lit sem ver viðinn gegn óhreinindum, dregur úr rýrnum og þenslu við rakabreytingar. Þessi endingargóða og viðhaldslétta klæðning gefur klefanum nútímalegt og stílhreint útlit.

Innra byrði er úr Ösp, hitameðhöndlaður harðviður. Gólf, veggir og loft eru einangruð, sem tryggir þægilegt notagildi allt árið. Allir glerfletir í klefanum og öðrum Misty einingum eru í sama lit og hleypa inn ríkulegri birtu. Stór panoramagluggi veitir fallega sýn yfir umhverfið. Tvöfalt, hert og sérvalið litað gler bætir orkunýtingu, og argongasið á milli glerja eykur einangrun. Dökkur tónn gluggans skapar rólega og jafna stemningu.>br> LED‑lýsing undir neðri bekk og efst á bakstoð skapar notalega stemningu.

Glerhurðin er með sterkum rúllulás sem tryggir mjúka opnun og örugga lokun. Hurðin er úr tvöföldu, hertu gleri og handfangið er hannað til að passa fullkomlega við nútímalegt útlit saununnar.

Harvia Cilindro Corner er stílhreinn hornofn sem sparar pláss og fellur fallega inn í saunaklefann. Ofninn þarf 50kg af steinum í stærð 5-10cm.
Ofninn er innbyggður með bogadregna hlíf og innbyggða festingu, glansandi stálklæðning og þríhyrningslaga form gera ofninn áberandi og stílhreinan.
Hornuppsetningin gefur meira pláss fyrir gesti. Hægt er að stýra hitanum með því að ausa vatni á hliðarnar eða ofan á ofninn.
Scroll to Top
icons8-cookiesCreated with Sketch.

Vefkökur

Laugin.is notar vefkökur til að gera upplifun þína af vefnum okkar betri.