Low flow (LF, FLO, FL, FL1, eða þrír blikkandi punktar) = Athugaðu hvort síurnar eru hreinar og í góðu ásigkomulagi. Athugaðu hvort hringrásardælan er enn að hreyfa við vatninu. Er nægt vatn í pottinum? Ef þú ert með þrýstirofa gæti þurft að stilla hann.
Heater Dry eða Overheat (OH, OHH, HFL, DY, DRY) = Er búið að loftæma allar dælur og hitara? Athuga með allar síur? Er hringrásardælan enn að hreyfa við vatninu?
Sensor Errors (SN, SNT, SNH, SNS, S1, S2) = Oft eru þessar aðvaranir vegna bilaðra skynjara, en stundum eru þetta vandamál á stjórnborðinu (PCB).
Útsláttur = Hvenær gerist þetta? Er eitthvað mynstur? Ef þetta gerist þegar þú ýtir á ákveðinn hnapp er þetta líklega tengt þeim búnaði sem þú ert að reyna að ræsa. Athugaðu t.d. hvort potturinn slær út þegar hitarinn fer í gang, því það gefur til kynna að eitthvað sé að hitaranum/elementinu.
Potturinn lekur = Hversu mikið vatn tapast á sólarhring eða viku? Hefur þú opnað hliðarnar á pottinum til að sjá hvar lekinn er? Ertu búin/nn að ganga úr skugga um að allar rær séu vel hertar?
pd = Aflgjafi, potturinn er að keyra á vararafhlöðu til að halda inni stillingum.
OH = Ofhitnun, hitanemarnir greina hita yfir hættumörkum. 44-48°C.
OHH = Potturinn er búinn að slökkva á sér sökum þess að hitinn er kominn yfir 48°C.
OHS = Yfirhiti, potturinn slökkti á sér sökum þess að einn hitaneminn greindi hita um eða yfir 45°C.
Flo = Ófullnægjandi vatnsflæði eða bilun í þrýstirofa.
Cool = Vatnshiti 20°C undir takmarki.
ICE = Potturinn nemur aðstæður þar sem vatnið í honum gæti frosið, fer þá sjálfkrafa í keyrslu sem kemur í veg fyrir það.
Sn1 = Bilun í yfirhitavara.
Sn3 = Bilun í hitanemum.
SnA = Potturinn slökkti á sér, hitanemi A virkar ekki.
Snb = Potturinn slökkti á sér, hitanemi B virkar ekki.
SnS = Hitanemar í ójafnvægi, ef þessi skilaboð komu upp ásamt hitaskilaboðum gæti þetta ástand verið tímabundið. Ef að skjárinn sýnir bara þessi skilaboð og blikkar slekkur potturinn á sér.
HFL = Mikill munur á milli hitanema, gæti verið merki um vatnsflæðisvandamál.
LF = Síendurtekið vatnsflæðisvandamál. (Kemur upp ef „HFL“ skilaboð hafa komið upp 5 sinnum innan 24 klukkustunda). Slökkt er á hitaranum, en allt annað í pottinum er virkt.
dr = Ekki nægilegt vatn í hitaranum.dry = Ófullnægjandi vatnsmagn í hitaranum. (Kemur á skjáinn í 3ja tilfelli þar sem „dr“ skilaboðin eru sýnd). Potturinn slekkur á sér.
Pr = Þegar kveikt er á pottinum þá fer hann í svokallað Priming Mode. Sem er sjálfspróf sem potturinn fer í gegnum í hvert skipti sem kveikt er á honum. Tekur 3-5 mínútur.
ILOC = Varúðarráðstöfun sem slekkur á pottinum. Potturinn greinir möguleika á „Pump Spike“ eða „Ozone Spike“ Þar sem skyndilega gæti komið óeðlilega mikill þrýstingur frá annaðhvort nudd-dælunni eða frá ozonatornum.
(—) = Potturinn greinir ekki hitann á vatninu. (Kemur upp eftir að það er búið að fylla pottinn og kveikt er á honum).
Std = Potturinn í Standard Mode.
Ecn = Potturinn í Economy Mode.
SE = Potturinn í Standard-in-Economy Mode.
FLO = Ófullnægjandi vatnsflæði eða bilun í þrýstirofa, rofi opinn.
FLC = Bilun í þrýstirofa, rofi lokaður.
Prr = Bilun í hitanema.
Prh = Bilun í hámarkahitanema.
HL = Ofhitnun, hitanemi mælir 48°C
FrE = Frostviðvörun
ILOC = Varúðarráðstöfun sem slekkur á pottinum. Potturinn greinir möguleika á „Pump Spike“ eða „Ozone Spike“ Þar sem skyndilega gæti komið óeðlilega mikill þrýstingur frá annaðhvort nudd-dælunni eða frá ozonatornum.
FLO = Ófullnægjandi vatnsflæði eða bilun í þrýstirofa.
Hold = Ýtt hefur verið of oft eða of hratt á takka.
HOT = Ofhitnun á tölvu, kælivifta fer í gang.
ICE = Frostviðvörun
Pnl = Truflun í samskiptum milli tölvu og takkaborðs.
Sn1 = Bilun í yfirhitavara.
Sn3 = Bilun í hitanema.
HiLi = Ofhitnun, hitanemarnir greina hita yfir hættumörkum.
BJ2P = Pumpa/dæla í hreinsun. Eðlilegt ástand.
FP = Frostviðvörun
SS = 0;SS=S;LS=O;LS=S: Margvíslegar orsakir; Opnir nemar, slæm tenging við takkaborð, ónægur straumur, o.s.frv.
CoLd = Hitastig í hitakerfi er undir 4° C. Staða á hita elementi er óþekkt. Dælubúnaður mun halda áfram virkni þar til hitastig hækkar yfir 7° C.
OH = Yfirhiti. Hitinn á pottinum 42° C. Ekki nota pottinn ef hitaskilaboð blikka eða OH skilaboð birtast á skjá.
HLoH = Yfirhiti, hitanemi ótengdur, sleginn út eða hitinn á pottinum er yfir 44° C.
SEoP = Nemi opinn eða ótengdur. Hitari óvirkjaður en potturinn er nothæfur.
SESH = Nemi sleginn út eða ótengdur. Hitari óvirkjaður en potturinn er nothæfur.
PSoC = Þrýstirofi opinn með með hringrásardælu.
PSoL = Þrýstirofi opinn með með litlu flæði.
PSoH = Þrýstirofi opinn með með miklu flæði.
ToE = Rann út á tíma. Sjaldgæf kerfisvilla. Pottur ónothæfur.
Sn1 = Bilun í yfirhitavara. Hitari óvirkjaður.
Sn2 = Bilun í hitanema. Hitari óvirkjaður.
FL1 = Ófullnægjandi vatnsflæði eða bilun í þrýstirofa. Athugið vatnsmagn og hvort dæla sé í lagi. Athugið hvort filter sé stíflaður.
FL2 = Bilun í þrýstirofa. Rofi lokaður en dæla óvirkjuð.
COL = Ef hitastig fer 6º niður fyrir valið hitastig mun lágþrýstidæla og hitari koma hitastigi í innan við 3º frá völdu hitastigi.
ICE = Kæliviðvörun. 12ºC hiti. Dæla og hitakerfi munu fara í gang þegar hitastig nær 18ºC.
OH = Yfirhiti, hitastig hefur náð 43º C. Varað við að nota pottinn. Lágþrýstidæla (og kælivifta, sé hún til staðar) munu virkjast til að kæla pottinn.
— = „Watchdog“. Ofhitnun, hiti hefur náð 47ºC. Potturinn slekkur á sér.